Neyðarkall - Geturðu bjargað barni?

Reikningur ABC til að mæta brýnustu þörfum barnanna er nr. 0344-26-1000 Kennitalan er: 690688-1589.

Reikningur Vinafélags ABC til að styrkja rekstur starfsins á Íslandi og til greiðslu reikninga er nr. 344-26-4200 kt. 620207-2170


 

Fall krónunnar hefur ekki farið fram hjá neinum og hefur ABC barnahjálp hefur ekki farið varhluta af því ástandi.


Um 12 þúsund börn eru í skólum og barnaheimilum ABC barnahjálpar í hinum ýmsu löndum og kostar yfir 27 milljónir á mánuði að sjá fyrir þessum stóra barnaskara miðað við gengi krónunnar í dag. Íslenska krónan hefur fallið yfir 40% frá áramótum sem er þriðja mesta fall allra gjaldmiðla í heiminum á þessum tíma. Þegar svo við bætist hækkun matarverðs í heiminum sem er verulegt vandamál í þeim löndum sem ABC starfar er ljóst að endar ná hvergi nærri saman.


Allir sjóðir ABC eru nú uppurnir og þó hefur ekki verið hægt að senda nauðsynlegt fjármagn til barnanna. Matarreikningar hafa hlaðist upp og þolinmæði birgja er á þrotum.


Í svona árferði væri eðlilegast að skera niður og senda á brott þau börn sem enn vantar stuðningsaðila, en það er ekki valkostur í hugum okkar. Við viljum berjast fyrir börnunum okkar sem mörg hver hafa komið úr ömurlegum aðstæðum og hafa leitað á náðir starfsins í neyð sinni.


Hefðir þú tök á að hjálpa einu barni svo að hægt sé að tryggja því örugga dvöl á heimili og/eða skóla ABC barnahjálpar. Það kostar ekki nema 2500 kr./mán. að sjá barni fyrir skólagöngu með skólamáltíðum, bókum og öðru tilheyrandi skólanum. Ef barnið dvelur á barnaheimili ABC eða heimavist með fullri framfærslu er þessi kostnaður 3900 kr./mán.

Vinsamlegast smelltu hér ef þú vilt taka að þér að styðja barn.


ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is