15. september 2009
Til stuðningsaðila og vina ABC Barnahjálpar í Kenya.
Fimmtudaginn 3. september síðastliðinn sendi ég frá mér tölvupóst með kalli eftir aðstoð við starf ABC í Kenya. Við sáum fram á að geta ekki haldið starfinu áfram vegna skulda sem höfðu safnast upp vegna hins erfiða gengis krónunnar og stóðum því frammi fyrir þeim erfiða veruleika að þurfa að senda börnin í burtu af barnaheimilinu sem við starfrækjum, en þar eru nú 150 börn.
Að senda þennan tölvupóst var síðasta hálmstráið í veikri von um að einhverjir sæju sér fært um að bregðast við en í ljósi hins erfiða efnahagsástands á Íslandi taldi ég ekki hægt að búast við miklu.
Mér til ólýsanlegrar gleði og mikillar undrunar þá fór þessi tölvupóstur miklu víðar en ég bjóst við. Hann var t.d. birtur á Eyjunni, margir birtu hann á facebook síðunum sínum og einnig komu skrif í Fréttablaðið og á Vísi.is okkur til stuðnings. Þetta leiddi til þess að fjöldi fólks ákvað að láta eitthvað af hendi rakna. Í lok síðustu viku var búið að leggja inn á reinkninginn rétt tæpar 4 milljónir í auka framlögum. Að auki voru komin vilyrði fyrir auknum mánaðarlegum framlögum til starfsins fyrir um 300.000. krónum á mánuði. Þetta samanlagt gerir okkur ekki einungis kleift að gera upp skuldirnar heldur fjármagnar einnig matarkaup og húsleigu næstu 6 mánaða og tryggir að við munum ekki safna upp skuldum á næstunni þó að gengið sé slæmt.
Ég sagði í bréfinu að stærstu kraftaverkin gerast oft þegar útlitið er svartast og svo sannarlega fengum við kraftaverkið okkar. Það er ólýsanlega þungu fargi af okkur létt og ég hef ekki hætt að brosa síðan ég fékk fréttirnar. Ég er himinlifandi glöð yfir þessari óvæntu atburðarás.
Mig langar því að nota tækifærið og þakka öllum sem gáfu fyrir gjafmildina og fyrir að láta sér annt um líf fátækra barna í fjarlægu landi. Fyrir okkur er þetta stórkostlegt kraftaverk og algerlega ófyrirséð í kreppunni sem ríkir á Íslandi. Innilegar þakkir fyrir hlýhuginn og stuðninginn.
Bestu kveðjur,
Þórunn Helgadóttir
Framkvæmdastjóri ABC Barnahjálpar í Kenya.

3. september 2009
Kæru stuðningsaðilar og vinir ABC barnahjálpar í Kenya.
Það er þannig ástandið hjá okkur í Kenýa að við sjáum ekki fram á að geta haldið áfram með sama fjölda barna á heimilinu í Naírobí þegar ný skólaönn hefst 8. september nema að kraftaverk komi til. Við höfum undanfarið alið önn fyrir 150 börnum á heimilinu en gengið á krónunni er svo lágt að það hefur gert okkur afar erfitt fyrir að brauðfæða þennan fjölda. Okkur hefur sem betur fer tekist að gera upp skólagjöldin fyrir öll börnin, bæði í dagskólanum og á heimavistinni, en höfum ekki getað greitt matarreikningana né húsaleiguna fyrir barnaheimilið. Nú er svo komið að við skuldum húsaleigu og matarreikninga upp á um 10.000 dollara og sjáum ekki fram á að geta gert þá upp. Það þarf því að grípa til þess ráðs að koma stórum hluta barnanna fyrir annars staðar nema að til komi kraftaverk. Það erfiða fyrir okkur í þessari stöðu er að þurfa að senda börnin aftur inn í sömu bágbornu aðstæðurnar sem við björguðum þeim úr.
Við viljum því biðla til þeirra sem geta lagt eitthvað af mörkum að hjálpa okkur í þessum vanda. Ef að nokkur hundruð manns leggja inn 1000-2000 krónur hver þá mun það gera okkur kleift að gera upp skuldirnar og halda áfram að annast börnin. Bestu kraftaverkin gerast þegar útlitið er svartast. Við trúum því líka að fyrr eða síðar muni ástandið batna og erum við því að reyna að gera allt sem við getum til að lifa erfiðasta hjallan af. Til að bregðast við vandanum þá höfum við skorið niður kostnaðinn eins og hægt er, leitað eftir matvælaaðstoð til ýmissa aðila og erum nú einnig að hefja grænmetisræktun. Þótt þetta eitt og sér hafi ekki dugað þá hefur það hjálpar mikið til.
Góðu fréttirnar frá okkur eru þær að börnunum á heimilinu fór verulega mikið fram í náminu á síðustu önn. Þar sem mörg þeirra eru eftir á í skóla og voru að byrja upp á nýtt eftir að hafa upplifað miklar hremmingar og áföll í lífi sínu þá þurfti töluvert mikið til að hjálpa þeim áfram í náminu. Við glöddumst því afar mikið yfir bættum námsárangri á síðustu önn en að jafnaði hækkuðu einkunnir nemenda á heimavistinni um fjórðung. Efldi þetta einnig mikið sjálfstraust barnanna og var gaman að sjá hvað þau stolt yfir einkunnum sínum. Dagskólabörnin stóðu sig einnig afar vel og er hinn bætti árangur mikil uppörvun fyrir okkur. Það er ekki síst í ljósi þessa árangurs sem okkur þykir sárt að standa frammi fyrir því að raska lífi barnanna og senda þau frá okkur. En vonin er enn til staðar og við trúum því að einhverjir sjái sér fært að bregðast við.
Fyrir þá sem vilja hjálpa okkur þá er reikningsnúmerið fyrir Kenya 344-13-44005, kt. 690688-1589.
Við viljum einnig nota tækifærið og þakka ykkur stuðnigsaðilum og þeim fjölmörgu aðilum sem hafa á síðustu mánuðum lagt sitt af mörkum svo að við gætum haldið áfram að ala önn fyrir börnunum. Þessi framlög ykkar hafa gert það að verkum að við erum enn starfandi þrátt fyrir efnahagserfiðelikana og er það kraftaverk í sjálfu sér.
Bestu þakkir og kveðjur til ykkar allra fyrir hönd barna og starfsfólks í Kenya.
Þórunn Helgadóttir.
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is