Burkina Faso


Nú stendur yfir söfnun til að borga fyrir borholu við ABC skólann í Burkina Faso. Söfnunarreikningurinn er 344-13-44007 kt 6906881589

Hér má skoða blogg sem Gullý heldur úti í Burkina Faso fyrir vini og vandamenn  http://hinrikoggully.123.is/


Febrúar 2011
Undirrituð er nýkomin heim frá Burkina Faso þar sem ég heimsótti starfið.


Á þessu skólaári stunda 198 börn nám í ABC skólanum okkar í Bobo Dioulasso. Í 1. bekk (CP1) eru 50 börn, í 2. bekk (CP2) eru 57 börn og 91 barn stundar nám í 3ja bekk (CE1) sem skiptist í tvo bekki CE1A og CE1B.


Nýlega lauk byggingu nýs skólahúss með 6 kennslustofum sem kemur til með að hýsa 300 börn frá 1. og upp í 6. bekk. Þetta er glæsileg bygging sem verið er að mála svo hægt sé að taka hana í notkun.

Börnin í skólanum koma úr bláfátækum fjölskyldum sem búa í nálægu fátækrahverfi. Þörfin fyrir skóla er gríðarlega mikil í þessu hverfi. Ákveðið var að veita aðeins einu barni frá hverri fjölskyldu skólavist til að sem flestar fjölskyldur nyti góðs af starfinu. Því miður eru oftast mörg börn í hverri fjölskyldu sem fá ekki að ganga í skóla. Skólar á vegum hins opinbera eru yfirfullir með yfir 100 börn í hverjum bekk og mjög erfitt er að fá pláss fyrir fátæk börn sem ekki geta greitt fyrir.
 

Skólastarfið gengur mjög vel þökk sé frábærum kennurum sem vinna þrekvirki með þessa stóru bekki. Byrja þarf á að kenna börnunum frönsku svo hægt sé að kenna þeim að lesa og skrifa því þau tala mörg mismunandi tungumál. Skólastarf hefst kl 08:00 og kl 10:00 fá börnin morgunnhressingu. Klukkan 12:00 fá þau svo vel útilátinn hádegismat Þessar máltíðir eru oft einu máltíðir barnanna yfir daginn.


Stærsta vandamál skólans hingað til hefur verið vatnsskortur. Sækja þarf allt neysluvatn langar leiðir í brunn inni í hverfinu og flytja á asnakerru. Einnig hefur okkur vantað matsal fyrir börnin en þau borða matinn sinn undir skyggni þar sem sandurinn fýkur í matinn þeirra.

Nú hefur verið ákveðið að láta bora fyrir vatni sem mun bæta aðstöðuna til muna. Einnig á að byggja matsal fyrir skólann og eru framkvæmdir við grunn hans hafnar. Fjármagn fyrir byggingu matsalarins er til í sjóðum skólans en okkur vantar pening til að fjármagna borholuna. Besta tilboðið sem við fengum er 1.000.000 kr fyrir holuna. Við höfum því sett að stað sérstaka söfnun fyrir borholunni og er reikningurinn 344-13-44007 kt 6906881589. Allar gjafir í borholusjóðinn eru mjög vel þegnar.


Með því að fara inn á efirfarandi slóð má skoða myndaalbúm með myndum frá Bobo.

http://www.dropbox.com/gallery/11079247/1/Burkina%20Faso%20feb%202011?h=7528d4


Margrét Blöndal

Skrifstofustjóri

ABC barnahjálpar






 

ABC barnahjálp

Síðumúla 29

108 Reykjavík

 

Sími: 414 0990

Fax: 414 0999

 

Netfang:  abc@abc.is

Veffang:  www.abc.is