
ABC barnahjálp hóf starf í Pakistan í ágúst 2005. Í dag stunda um 3000 börn nám í þrettán ABC skólum í Pakistan.
ABC skólarnir í Pakistan eru allir kristnir skólar. Börnin sem ganga í skólana eru flest frá kristnum heimilum en kristnir í Pakistan eru aðeins um 1% þjóðarinnar. Börnin sem tekin eru inn í skólana koma öll úr gríðarlegri fáækt og í flestum tilfellum hafa foreldrar þeirra ekki haft efni á að senda þau í skóla. Það er ekki skólaskylda í Pakistan og þurfa foreldrar að borga skólagjöld fyrir börnin. Oft eru líka aðstæður þannig að börnin þurfa að vinna til að hjálpa til við að framfleyta fjölskyldunni. Ef óvænt útgjöld koma upp hjá þessum fátæku fjölskyldum, t.d. ef einhver veikist og þarf læknisþjónustu, þurfa fjölskyldur oft að taka lán og setja þá barn sitt í vinnu hjá lánsalanum sem tryggingu gegn því að lánið sé greitt. Í mörgum tilfellum losnar barnið aldrei úr þessari vinnuþrælkun.
Eins og er bjóðum við aðeins upp á grunnskólamenntun en í gangi er söfnun fyrir byggingu framhaldsskóla svo börnin geti menntað sig meira. ABC hefur byggt fimm skóla og einn heimavistarskóla í Pakistan og hefur sett aðra sjö á stofn í leiguhúsnæði. Þörfin fyrir ókeypis menntun er gríðarleg í Pakistan og reynir ABC barnahjálp eftir fremsta megni að gefa sem flestum börnum tækifæri á að ganga í skóla. Um þúsund börn eru nú á biðlista eftir skólagöngu og heimavist í ABC skólunum. 

Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is