Skólinn ABC skólinn í Gujranwala hóf starfsemi sína árið 2008 í leiguhúsnæði með nemendur í 1.-5. bekk. Skólinn er staðsettur í Janat Town sem er úthverfi Gujranwala en þar er lítið samfélag kristinna Pakistana sem hafa flutt til borgarinnar úr sveitum og þorpum í leit að atvinnu. Flestir foreldrarnir eru bláfátækir verkamenn sem starfa í lægst launuðustu stöfum þjóðfélagsins.
Í dag eru 178 nemendur skráðir í skólann í forskóla og upp í 5. bekk. Eftir það fara þau í heimavistina í Machike þar sem 13 þeirra stunda nú nám.
Í október 2010 var nýtt skólahús vígt í Gujranwala þegar Guðrún Margrét Pálsdóttir formaður ABC heimsótti Pakistan. Skólinn var fjármagnaður með söfnun nemenda í Fjölbrautarskólanum við Ármúla. Skólinn hefur fengið nafnið Sumarhús að ósk Söru Hrundar Einarsdóttur, forsprakka nemendanna.
Sjá fleiri myndir á eftirfarandi slóð http://www.dropbox.com/gallery/11079247/2/Pakistan/Gujranwala?h=3d99a3
![]() |
|
Síðumúla 29
108 Reykjavík
Sími: 414 0990
Fax: 414 0999
Netfang: abc@abc.is
Veffang: www.abc.is